Bloggfærslur mánaðarins, september 2012
Mikilvægt aðhald almennings
8.9.2012 | 20:44
Svona skynja ég umræðuna í kringum mig og þess vegna velti ég því fyrir mér hvort það sé ekki einhvern veginn hægt að koma þessum skilaboðum til ríkisstjórnarinnar. Stjórnvöld virðast lifa í draumaheimi, allavega eru þau ekki að fá rétta mynd af því sem er að gerast hjá almenningi. Erum við kannski ekki nógu dugleg að láta þau heyra frá okkur og veita þeim nauðsynlegt aðhald?
Ef þú ert ekki sátt/ur með ástandið er mikilvægt að þú látir í þér heyra. Ábyrgðin er okkar, við getum ekki ætlast til þess að einhver annar geri hlutina fyrir okkur. Á miðvikudagskvöldið 12. september gefst þér tækifæri til að koma skilaboðum til stjórnvalda með því að mæta á Austurvöll kl.19:30.
Réttlæti velferðarráðherra
7.9.2012 | 12:27