SOS frá Íslandi
31.3.2011 | 00:40
Að frumkvæði Gunnars Tómassonar, hagfræðings og fyrrverandi ráðgjafa hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum, og fleiri Íslendinga var meðfylgjandi bréf sent til Dominiques Strauss-Khans, framkvæmdastjóra Alþjóðagaldeyrissjóðsins, og José Manuels Barrosos, forseta Framkvæmdarstjórnar Evrópusambandsins. Bréfið var sent til þeirra í ljósi þess lykilshlutverks sem AGS og ESB skipuðu í nóvember 2008 þegar samningaviðræðurnar vegna Icesave hófust.
Á þessum tíma setti AGS fram spár um efnahagshorfur Íslands og gengið var frá samkomulagi um að ef efnahagsþróun landsins yrði umtalsvert verri en þessar spár gerðu ráð fyrir þá gæti Ísland farið fram á viðræður við Bretland og Holland vegna þeirra þátta sem liggja til grundvallar frávikinu og um sjálft viðfangsefnið Icesave. Nýlegt mat AGS á þróuninni á árunum 2009 til 2010 og spár fyrir 2011 til 2013 gefa mun verri mynd en fyrri spár.
Bréfritarar hafa áhyggjur af því að núverandi frumvarp um Icesave-samninginn, sem verður lagt fyrir í þjóðaratkvæðagreiðslunni 9. apríl n.k., endurspegli ekki þessa neikvæðu þróun. Því fara bréfritarar þess á leit við AGS og ESB að þessar stofnanir geri ítarlegt og sjálfstætt endurmat á skuldaþoli Íslands annars mun vanhugsuð úrlausn Icesave-málsins þröngva Íslandi í ósjálfbæra erlenda skuldagildru."
Reykjavík 28. mars 2011
Mr. Dominique Strauss-Kahn
Managing Director
International Monetary Fund
Washington, DC 20431
USA
Kæri, Mr. Strauss-Kahn.
Eftir hrun íslenska bankakerfisins í október 2008 féll verg landsframleiðsla (VLF) um 25% á næstu tveimur árum eða úr 17 millörðum bandaríkjadala niður í 128 milljarða bandaríkjadala (USD). Ef spá Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) um 14,8% vöxt vergrar landsframleiðslu næstu þrjú árin gengur eftir mun hún nema 14,7 milljörðum bandaríkjadala árið 2013 og vera 13% lægri en árið 2008.
Horfurnar eru aðeins skárri ef mið er tekið af vergri landsframleiðslu á stöðugu verðlagi í íslenskum krónum . AGS spáir að árið 2013 verði verg landsframleiðsla um 2-3% lakari en árið 2008 sem þýðir að hún verður 4-6% lægri en AGS spáði í nóvember 2008.
Með öðrum orðum þá eru efnahagshorfur Íslands umtalsvert lakari en gengið var út frá við gerð svokölluðu Brussels viðmiða fyrir ICESAVE samninga sem aðilar málsins samþykktu undir handleiðslu viðkomandi stofnunar Evrópusambandsins (ECOFIN) í nóvember 2008.
Jafnframt telur AGS að vergar erlendar skuldir Íslands í lok ársins 2009 hafi verið um 308% af vergri landsframleiðslu. Það þýðir nærri tvöfalt það 160% hlutfall sem sjóðurinn spáði í nóvember 2008. Í skýrslu AGS um Ísland, dagsettri 22. desember 2010, er því spáð að vergar erlendar skuldir Íslands muni nema 215% af vergri landsframleiðslu í árslok 2013 (sjá töflu 3, bls. 32 í umræddri skýrslu) eða liðlega tvöfalt það 101% hlutfall sem spáð var í nóvember 2008 (sjá töflu 2, bls. 27 í sama riti).
Vergar erlendar skuldir Íslands í lok 2009 voru langt umfram það 240% hlutfall af vergri landsframleiðslu sem starfsmenn AGS mátu sem augljóslega ósjálfbært" í skýrslu þeirra sem er dagsett 25. nóvember 2008 (sjá bls. 55 í þessari skýrslu).
Meginmarkmið þess samningaferils um ICESAVE sem hleypt var af stokkunum í nóvember 2008 var að tryggja uppgjör á flóknum málum sem viðkomandi aðilar, að meðtöldum ESB og AGS, voru einhuga um að leiða til farsællar lausnar samhliða endurreisn íslenska hagkerfisins.
Við undirritaðir Íslendingar höfum verulegar áhyggjur af því að fyrirliggjandi drög að samkomulagi um ICESAVE samrýmist ekki þessu meginmarkmiði, og vísum í því sambandi til umsagna AGS um þróun og horfur varðandi innlendar hagstærðir og erlenda skuldastöðu Íslands hér að ofan.
Því förum við þess virðingarfyllst á leit við ESB og AGS að þessar stofnanir takist á hendur ítarlegt og sjálfstætt endurmat á skuldaþoli Íslands svo að vanhugsuð úrlausn ICESAVE-málsins þröngvi ekki Íslandi í ósjálfbæra erlenda skuldagildru.
Virðingarfyllst,
Gunnar Tómasson, hagfræðingur
Ásta Hafberg, háskólanemandi
Gunnar Skúli Ármannsson, læknir
Helga Þórðardóttir, kennari
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, stjórnsýslufræðingur
Lilja Mósesdóttir, þingmaður Vinstri grænna
Rakel Sigurgeirsdóttir, framhaldsskólakennari
Sigurjón Þórðarson, formaður Frálslynda flokksins
Vigdís Hauksdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins
Þór Saari, þingmaður Hreyfingarinnar
Þórður Björn Sigurðsson, starfsmaður Hreyfingarinnar
Svör sendist til;
Helga Thordardottir
Seidakvisl 7
110 Reykjavik
Iceland
***
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Heil og sæl Nafna !
Afar þýðingarmikið; - sem þakkarvert, ykkar framtak, í ljósi þeirra ógnar viðburða, sem Íslendingar búa nú við.
Það er ekki lakara; að þeir Strauss-Kahn og Barrosó hafi fleirri gagnaveitur til aðgengis, en málskrúð og þvætting Össurrar Skarp héðinsssonar, gott fólk.
Með beztu kveðjum; úr Árnesþingi /
Óskar Helgi Helgason
Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 31.3.2011 kl. 01:03
Ég tek undir þetta bréf ykkar. Og er sammála Óskari Helga..
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 31.3.2011 kl. 01:32
Takk fyrir að vekja athygli á þessu.
Sigurður Hrellir, 31.3.2011 kl. 09:12
Frábært alveg.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 31.3.2011 kl. 09:26
Frábært framtak.
Kærar þakkir.
Guð veri með ykkur
Kær kveðja/Rósa
Rósa Aðalsteinsdóttir, 2.4.2011 kl. 23:57
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.