Mikilvægt aðhald almennings
8.9.2012 | 20:44
Svona skynja ég umræðuna í kringum mig og þess vegna velti ég því fyrir mér hvort það sé ekki einhvern veginn hægt að koma þessum skilaboðum til ríkisstjórnarinnar. Stjórnvöld virðast lifa í draumaheimi, allavega eru þau ekki að fá rétta mynd af því sem er að gerast hjá almenningi. Erum við kannski ekki nógu dugleg að láta þau heyra frá okkur og veita þeim nauðsynlegt aðhald?
Ef þú ert ekki sátt/ur með ástandið er mikilvægt að þú látir í þér heyra. Ábyrgðin er okkar, við getum ekki ætlast til þess að einhver annar geri hlutina fyrir okkur. Á miðvikudagskvöldið 12. september gefst þér tækifæri til að koma skilaboðum til stjórnvalda með því að mæta á Austurvöll kl.19:30.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Sammála þér Helga mín, ég sé ekki þennan góða árangur ríkisstjórnarinnar. Ekki hér á mínu skinni. Verð með ykkur í huganum á Austurvelli 12 september.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 9.9.2012 kl. 00:01
Sammála ykkur báðum.
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 9.9.2012 kl. 02:14
Góður pistill og þörf ábending til okkar allara. Fólk verður að láta heyra i sér. Það er ekki allt eins og það á að vera og vantar mikið uppá.
Ólafur Örn Jónsson, 10.9.2012 kl. 01:38
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.