Skín við sólu Skagafjörður

Ég er komin á Sauðárkrók og ætla  að hafa það huggulegt hér í nokkra daga hjá honum Sigurjóni bróður. Ég hlakka til Unglingalandsmótsins sem verður haldið hér á Króknum um Verslunarmannahelgina. Það verður gott að gleyma vandamálum þjóðarinnar um stund og fylgjast með ungum Íslendingum spreyta sig í hinum ýmsu íþróttagreinum.  Byrjaði reyndar á því að fara á fótboltaleik í kvöld. Liðin sem kepptu voru Hamar og Tindastóll og okkur til mikillar ánægju sigraði Tindastóll með einu marki.

Það mun reyndar  mæða nokkuð á Sigurjóni bróður þessa helgi þar sem hann er formaður Ungmennasambands Skagafjarðar. Kannski get ég orðið að einhverju gagni enda erum við nokkuð mörg á heimilinu eða níu manns ásamt hundi og hamstri. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Vonandi hafið þið það gott og hundurinn og hamsturinn líka

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 30.7.2009 kl. 02:51

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Hafið það gott Helga mín og ég bið að heilsa Sigurjóni. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 30.7.2009 kl. 08:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband