Eru skuldarar réttdræpir

Ég vil vekja athygli á mjög athyglisverðum borgarafundi í Háskólabíói mánudaginn 26. september kl. 20. Þessi fundur verður vonandi upphafið af andstöðuvori á þessu hausti. Sú niðurstaða byggist reyndar á okkur sjálfum.

Frummælendur verða Sturla Jónsson sem hefur lúslesið lagasöfn landsins sem snúa að lántökum og meðrferð slíkra mála. Við þann lestur hefur hann uppgötvað ýmis lögbrot sem framin eru á lántakendum.  Honum hefur gengið erfiðlega að fá góð gagnrök við fullyrðingum sínum hjá lærðum. Þess vegna er m.a. boðað til þessa fundar til að ræða þessi máli. Ennþá hefur ekki tekist að fá meðmælenda við beitingu núverandi laga og stefnir í að niðurstaðan verði að á Íslandi fari menn ekki eftir lögum heldur hefðum.

Jóhannes Björn, rithöfundur og höfundur bókarinnar Falið Vald, mun ræða um fjármálkerfið, spillinguna og klikuskapinn og skýra væntanlega fyrir okkur á hverju beiting laga nærist á Íslandi. Björn Þorri Viktorsson Hæstaréttarlögmaður sem hefur látið til sín taka varðandi lánamál heimilanna mun segja okkur frá sinni sýn á þessi mál. Ragnar Þór Ingólsfsson stjórnarmaður í VR hefur ígrundað lífeyrissjóðakerfið okkar og hagsmunatengslin í kringum það kerfi. Hann mun fræða okkur um það og hlutverk lífeyrissjóðakerfisins sem lánadrottins á Íslandi.

Fundurinn verður örugglega mjög merkilegt innlegg í umræðu dagsins. Hann fjallar um hagsmunamál allra lántakenda og réttarstöðu þeirra. Hann gæti orðið upphafið að syllu sem ekki gefur eftir í baráttu þeirra sem finnst að réttur hafi verið brotinn á sér sem lántakenda á Íslandi.

Mætum og sýnum borgarlega virkni.

 

 borgarafundur_26_09_2011.jpg

 

Undirskriftasöfnun Hagsmunasamtök Heimilanna.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Athyglisvert coment hjá Guðbirni, skuldabréf lífeyrissjóða bera það með sér að ekki er leyfilegt að bæta verðbótum ofná höfuðstól.

Gudbjornj.blog.is

S. Þórarins (IP-tala skráð) 25.9.2011 kl. 22:26

2 identicon

Fundurinn væri miklu betri án Sturlu, enn hef ég ekki heyrt einn lögfræðing taka undir með honum varðandi skilning hans á ýmsum lögum eins á orðinu "skal" enda þýðir það fleira en hann vill vera láta. Til dæmis þegar einhver segir við þig þegar þú ferð t.d. til Kaupmannahafnar, :"þú skalt ekkert vera að fara í Dýragarðinn" þá er viðkomandi bara með ábendingu ekki með skipun.

Sg. (IP-tala skráð) 25.9.2011 kl. 23:31

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Sannarlega forvitnilegur fundur og vonandi fjölsóttur, nú er erfitt að vera langt í burtu.  Gangi ykkur vel með fundinn.  Þið grasrótin eru framtíðin sem fólk er að bíða eftir, hvort sem það gerir sér grein fyrir því eða ekki. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 26.9.2011 kl. 20:13

4 Smámynd: Guðni Karl Harðarson

Ég var á fundinum Ásthildur. Þetta var mjög góður fundur og áhugaverður! Góðar spurningar og góð erindi.

Guðni Karl Harðarson, 26.9.2011 kl. 23:18

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk Guðni gott að vita. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 27.9.2011 kl. 14:51

6 Smámynd: Haraldur Baldursson

Fundurinn var mjög góður. Það sem vakti mesta athygli hjá mér var hugurinn í gestum sem hafa fengið sig svo innilega fullsadda á lygum, prettum, rangfærslum og almennu skeytingaleysi Norrænu Velferðarstjórnarinnar. Ég er sannfærður um að þingsetningin á laugardaginn á eftir að verða eftirminnileg.

Haraldur Baldursson, 28.9.2011 kl. 20:53

7 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ég vona það sannarlega það er satt sem sagt er að þessi ríkisstjórn og eiginlega allt batteríið er orðin eins og mara á þjóðinni.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 29.9.2011 kl. 09:15

8 Smámynd: Guðni Karl Harðarson

Ásthildur og þið hin sem voruð ekki á fundinum geta farið á:

http://www.hjariveraldar.is/

og horft á myndband af fundinum (skipt niður í hluta). Velja efst á forsíðunni.

Guðni Karl Harðarson, 29.9.2011 kl. 14:58

9 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk furir þetta, verð að bíða með að skoða þar til ég kem heim, því þessi tölva er hljóðlaus líka furir utan uppsilonið. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 29.9.2011 kl. 19:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband