Hver er skuldasetning þjóðarinnar? Fjölmiðlar kannið málið.

Hvað á maður að halda. Er einhvers konar þöggun í gangi um skuldsetningu þjóðarinnar? Hvers vegna er svona lítil umfjöllun um þessi málefni  hjá fjölmiðlum. Mér finnst að fjölmiðlamenn ættu virkilega að fara að kanna hver skuldastaða þjóðarinnar sé í raun og spyrja stjórnmálamenn um það hvernig þeir ætla að taka á málunum. Mér finnst þetta mun brýnna mál en að vera stöðugt að ræða um ESB aðild.
mbl.is Erfitt að standa undir skuldum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Auðvitað er þöggun í gangi. 

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 28.4.2009 kl. 23:50

2 Smámynd: Þórður Björn Sigurðsson

Þetta er mál númer 1, 2, og 3.

Loksins eru menn líka farnir að kveikja á því að skuldaleiðréttingar vegna efnahagsvanda heimilanna eru óumflýjanlegar.

Þórður Björn Sigurðsson, 29.4.2009 kl. 00:13

3 Smámynd: Andri Geir Arinbjarnarson

Helga,

Alveg sammála.  Ég er búinn að reyna að fá botn í þetta en kem alltaf að tómum kofa alls staðar.  Helst kominn á þá skoðun að þetta sé eins og í Sovét forðum, enginn veit og enginn þorir að viðurkenna þetta.  Að leggja niður Þjóðhagsstofnun á sínum tíma hefur átt mikinn þátt í þessu hruni og mun gera þetta verra.  Án réttra upplýsinga er erfitt að taka réttar ákvarðanir.  Þess vegna gerist ekkert. 

Andri Geir Arinbjarnarson, 29.4.2009 kl. 13:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband